Feed on
Posts
Comments

Voða er maður latur við að láta af sér :(
Nú ætla ég að gera bót á því. Nú eru fyrstu jólin og áramótin vel liðin frá því við fluttum heim, þau fyrstu síðan 2001. Ég verð að viðurkenna að við áttum yndisleg jól og þrususkemmtileg áramót. Hátíðin var þó eitthvað skrítin því okkur vantaði norsku fjölskylduna okkar (Tobba, Lilju og börn og okkar yndislegu nágranna). En það er víst ekki hægt að fá allt.
Ég skellti mér svo til Norge í lok janúar, til tannsa, og átti þar yndislega helgi með “fjölskyldunni”. Eiginlega gerði ég fátt annað en að borða góðan mat a´la Lilja og knúsa krúttin Oliver og litlu Liv.
Næsta ferð til Norge verður í apríl og þá ætla ég að bjóða kallinum með (hann heppinn). Við verðum þó bara stutt í Noregi en ætlum að skella okkur með vinafólki til Litháen, spennóspennó.
Við höfum verið agalega róleg í tíðinni og eiginlega legið í hýði það sem af er árinu en vonandi förum við að kasta því af okkur og hafa samband við fólk :) Nú framundan eru árshátíðir, skírn, ferming, páskar og fullt fullt annað.
en nóg í bili
kveðja
Ólabólaávöllunum
ps. Inga, endilega að hafa samband ef þú ert á suðurleið, það væri rosa gaman að hitta ykkur :)

Jólaljósin lýsa

Ekki hefur hún verið dugleg að blogga frúin á Akurvöllunum (og ekki herrann heldur hmmmm).
En við erum enn þá hérna og höfum ekki borið skaða af rokinu undanfarið nema þá kannski andlega, kommon níu lægðir á einum mánuði (eða hvað það nú var). Ég hef lítið á móti roki en nú er komið nóg. Ég er komin með seríu út á svalir og vil að hún lifi alla vega fram yfir áramót. Hún er reyndar ofurvelfest svo ég skal hundur heita ef hún nær að losna!!!
En það hefur nú ýmislegt annað verið í gangi en bara rok. Við keyptum okkur loks gardínur (ekki þær sem við æluðum upphaflega en aðrar soldið ódýrari í RL búðinni:) og erum komin með slatta af ljósum og ég verð bara að segja að það er orðið agalega kósí hérna hjá okkur og ekki verður það verra þegar jólatréð (sem á reyndar eftir að kaupa) verður komið upp. Mér finnst þetta bara svo æðislegur tími að ég nenni varla að fara út og kaupa jólagjafir og allt það stöff. Það er reyndar langt komið og ætli við klárum ekki á morgun eða miðvikudaginn. Svo er bara að láta sér hlakka til :)
Ég er byrjuð í nýju vinnunni (reyndar fyrir næstum því tveimur mánuðum) og er að fíla mig í ræmur, spennandi vinna og samstarfsfólk.
Tobbi, Lilja og Oliver, innilega til hamingju með litlu XXXX Liv. Ég er viss um að hún er algert æði og mig hlakkar til að knúsa hana í lok janúar þegar ég kem til Norge.
En þar sem að ég ætla að skella inn einni færslu enn fyrir jól, þá segi ég bara ….
bless í bili
Ólabólaávöllunum

og hvað svo….

Ég ákvað að láta ekki of langan tíma líða milli blogga í þetta skipti.
Það er ýmislegt búið að vera í gangi bíllinn sem við keyptum okkur í vor fór heldur betur illa með okkur. Hann tók upp á því að bila og þurftum við að punga út 320 þús. Þetta setti eiginlega öll plön úr skorðum og erum við því búin að setja gardínu, ljósa og bókahilluplön á hilluna í bili. Nú er ég bara í mega pælingum hvernig ég geti nýtt gardínurnar, sem ég var með úti, hérna (er svo agalega hagsýn). Eftir þessi svakalegu útgjöld vorum við komin með hálfgerða andúð á greyið bílnum svo við ákváðum að skipta honum út. Það gerðist eiginlega einn tveir og tíu því áður en við vissum af vorum við búin að ganga frá öllum pappírum og komin á nýjan bíl. Í þetta skipti fengum við okkur 2006 árgerð af Toyota avensis, settum hinn upp í og erum uber ánægð (og erum ekki að borga neitt meira af honum :)
Nú er mikið framundan reuinion, brúðkaup, noregsferð og ný vinna og sjálfsagt eitthvað meira. Annars er ég orðin svo góðu vön frá Norge að ég nenni ekki að detta inn í stress og læti tek hlutunum bara með stóískri ró og nýt lífsins.
svo segi ég bara við ykkur elskurnar njótið þið lífsins!
og Lilja farðu nú vel með þig og bumbuna elskan, sjáumst brátt.
kveðjaíbili
ÓlabólaáVöllunum

Allt góðum gír

Nú varð ég að láta aðeins heyra í okkur. Hér er allt í rólegheitum og lífið gengur sinn vanagang.
Við Mummi erum búin að vera á búðarrölti í september að reyna að finna okkur gardínur fyrir stofuna og það tókst loksins við ætlum að panta okkur gardínur í gardínubúð sem heitir Skermir (www.skermir.is ef þið viljið kíkja á framboðið). Við þurfum bara að mæla gluggana upp á nýtt og leggja inn pöntun :) Það verður svolítill munur að fá gardínur en ég er ánægð með að við hoppuðum ekki á það fyrsta sem við sáum.
Eftir helgi förum við að ganga frá síðustu lánunum og þá verður hægt að fara (vonandi) að ganga frá afsalinu og þá er íbúðin okkar (og bankans).
Haustið er farið að gera vart við sig með ekta Íslensku roki og rigningu, það er svolítið notalegt að sitja inn í stofu með kertaljós og hlusta á vindinn og rigninguna berja á gluggana og ef maður þarf að fara út, þá er bara að klæða sig eftir veðri (jehh sjensinn að íslendingar geri það :)
Hún Elísabet ætlar að leggja land undir fót í haustfríinu sínu og skella sér til Norge og kíkja á Tobba, Lilju, Oliver og Bumbuprinsessuna. Og svo ætla ég að skella mér þangað 1. nóv (þið losnið ekki svo auðveldlega við mig :)
En ég held ég láti þetta duga að sinni og reyna að skella inn línum pínu oftar
kveðja
Ólabólaáklakanum

Lífið á Akurvöllum 2

Jæja þá erum við vel flutt inn og búin að koma okkur nokkuð vel fyrir. Það er reyndar alltaf smottery eftir ss að klára að setja gólflistana, tæma síðustu leiðindakassana með dóti sem maður veit ekki hvað maður á að gera við og svo á auðvitað eftir að setja upp myndir, kaupa og setja upp gardínur og kaupa og setja upp ljós. hmmm var þetta allt, jæja þá kannski meira en smottery. En þetta kemur allt með kalda vatninu. Það mikilvægasta er að við erum komin í hús og okkur líður rosavel hérna.
Ég er að fara að leggjast í smá ferðalög, á morgun (miðvikudag 22. ágúst) er ég að fara til Akureyrar á ráðstefnu með vinnunni og kem aftur laugardaginn 25. ágúst, þetta verður örugglega rosalega gaman og örugglega eitthvað tjúttað. Ég verð svo heima fram á fimmtudag 31. ágúst, en þá ætla ég að skella mér til Norge að hitta tannsann minn. Ég kem svo aftur þriðjudaginn 4. sept, ég ætti að geta hitt einhverja á þessum dögum og jafnvel skoðað einhverjar búðir ;)
Svo vil ég óska Jónínu litlu systur til hamingju með 10 km hlaupið í Reykjarvíkurmaraþoninu, þú ert hetjan mín.

over and out
Ólabólaávöllunum

Eftir að hafa hamast við parketlagningu og fleira í næstum því viku fluttum við síðastliðinn fimmtudag, flutningarnir sem slíkar gengu mjög en það gerðist líka ýmislegt annað sem var ekki eins skemmtilegt. Nenni ekki að fara út í þá sálma hérna.
En eftir mikið fram og tilbaka vesen við ónefnt símafyrirtæki (fyrsti stafurinn er V…) þá erum við kominn með heimasíma og ADSL. Nýja símanúmerið okkar er 534-4563.

Meir síðar.

Kominn með lyklavöld!

Já, við erum búin að fá íbúðina afhenta og þá hefst vinnan við að parketleggja sem er aðalverkefnið næstu daga.

Meir síðar.

Er að smella saman

Núna er ekki mikið eftir að gera í íbúðinni. Málarinn á eftir að koma og renna yfir þetta allt saman, rafvirkin á eftir að koma og ganga frá tenglum (væntanlega þegar málarinn er búinn). Smiðurinn á eftir að ganga frá nokkrum smá atriðum í eldhúsinu og píparinn á eftir að ganga frá sinni hlið í eldhúsinu. Það stefnir því allt í afhendingu á föstudaginn nema eitthvað stórt komi uppá…:)

Það verður því væntanlega farið á fullt í að leggja parket um helgina. Og svo flutningar þann…….kemur í ljós síðar.

Vika í afhendingu ?

Jæja, þetta er að smella saman í íbúðinni. Kíktum í heimsókn áðan og smiðirnir eru byrjaðir að setja upp hurðakarma í 4 af 7 hurðum. Eldhúsið er að smella saman og sömu sögu má segja um baðið. Mig grunar að smiðirnir, píparinn og rafvirkinn klári þetta í byrjun næstu viku. Þá vantar bara málarann til þess að renna yfir íbúðina og þá ætti þetta að vera klárt til afhendingar. Þannig að afhending á föstudag eftir viku er ekkert óraunhæf hugmynd :)

Annars er Elísabet stunginn af til Spánar í 2 vikur og þessa helgina verðum við hjónakornin í því að aðstoða við málningu á húsinu hjá Tengdó!

Eldhúsið
Eins og titillinn segir, þá erum við ekki búin að fá afhenta íbúðina ennþá en þetta er allt saman í vinnslu. Innréttingarnar komu frá Byko í síðustu viku og smiðirnir eru að vinna í því að setja þetta upp. Ég kíkti í íbúðina í dag og tók nokkrar myndir af þessu öllu og eins og sjá má þá er eldhúsið komið vel á veg. Innréttingarnar fyrir baðið bíða rólegar á stofugólfinu. Hinsvegar eru allir fataskápar komnir á sinn stað. Svo vantar ennþá hurðir og eitthvað fleira. Ég vona að þetta klárist nú fljótlega. Hver veit nema það náist fyrir verslunarmannahelgi?

Annars er allt gott í fréttum, við erum loksins búin með ættar/fjölskyldumóta pakkann sem hefur staðið yfir síðastliðnar þrjár helgar. Hófst með því að ég fór í langan bíltúr á Seyðisfjörð á föstudegi og keyrði svo tilbaka á sunnudeginum (samtals einhverjir 1400 km). Skemmti mér mjög vel á Seyðisfirði meðan Ólöf skrapp til tannlæknis í Norge.

Helgina þar á eftir fórum við Ólöf svo á ættarmót fyrir vestan á Birkmel, sem er stutt frá Brjánslæk. Þar skemmtum við okkur konunglega í frábæru veðri með vinum og vandamönnum. Þarna bættust við ca. 750 km.

Og svo helgina þar á eftir (semsagt um síðustu helgi) fórum við á annað ættarmót, fórum austur á Hellishóla sem eru í Fljótshlíðinni (skammt frá Hvolsvelli). Þar áttum við frábæra helgi og skemmtum okkur frábærlega!
Ef það hefði ekki verið fyrir skort á þjónustulund og skipulagningu hjá ákveðnum starfsmönnum þarna á Hellishólum þá hefði þetta verið fullkomið. En svona er þetta stundum, það er þó allavega komið á hreint að næsta ættarmót verður ekki á sama stað…Einn jákvæður punktur þetta var að ekki þurftum við að keyra langt í þetta skiptið, einungis ca. 250 km. Heildarkeyrslan síðustu þrjár helgar er því í ca. 2500 km!

Af Elísabetu er það að frétta að hún er búin að vera að vinna á fullu undanfarnar vikur í þrem mismunandi vinnum og ætlar sér svo að fara til sólarlanda á fimmtudaginn og verður þar í heilar tvær vikur.

Older Posts »