Enginn íbúð ennþá en….
Jul 24th, 2007 by Mummi
Eins og titillinn segir, þá erum við ekki búin að fá afhenta íbúðina ennþá en þetta er allt saman í vinnslu. Innréttingarnar komu frá Byko í síðustu viku og smiðirnir eru að vinna í því að setja þetta upp. Ég kíkti í íbúðina í dag og tók nokkrar myndir af þessu öllu og eins og sjá má þá er eldhúsið komið vel á veg. Innréttingarnar fyrir baðið bíða rólegar á stofugólfinu. Hinsvegar eru allir fataskápar komnir á sinn stað. Svo vantar ennþá hurðir og eitthvað fleira. Ég vona að þetta klárist nú fljótlega. Hver veit nema það náist fyrir verslunarmannahelgi?
Annars er allt gott í fréttum, við erum loksins búin með ættar/fjölskyldumóta pakkann sem hefur staðið yfir síðastliðnar þrjár helgar. Hófst með því að ég fór í langan bíltúr á Seyðisfjörð á föstudegi og keyrði svo tilbaka á sunnudeginum (samtals einhverjir 1400 km). Skemmti mér mjög vel á Seyðisfirði meðan Ólöf skrapp til tannlæknis í Norge.
Helgina þar á eftir fórum við Ólöf svo á ættarmót fyrir vestan á Birkmel, sem er stutt frá Brjánslæk. Þar skemmtum við okkur konunglega í frábæru veðri með vinum og vandamönnum. Þarna bættust við ca. 750 km.
Og svo helgina þar á eftir (semsagt um síðustu helgi) fórum við á annað ættarmót, fórum austur á Hellishóla sem eru í Fljótshlíðinni (skammt frá Hvolsvelli). Þar áttum við frábæra helgi og skemmtum okkur frábærlega!
Ef það hefði ekki verið fyrir skort á þjónustulund og skipulagningu hjá ákveðnum starfsmönnum þarna á Hellishólum þá hefði þetta verið fullkomið. En svona er þetta stundum, það er þó allavega komið á hreint að næsta ættarmót verður ekki á sama stað…Einn jákvæður punktur þetta var að ekki þurftum við að keyra langt í þetta skiptið, einungis ca. 250 km. Heildarkeyrslan síðustu þrjár helgar er því í ca. 2500 km!
Af Elísabetu er það að frétta að hún er búin að vera að vinna á fullu undanfarnar vikur í þrem mismunandi vinnum og ætlar sér svo að fara til sólarlanda á fimmtudaginn og verður þar í heilar tvær vikur.