Vika í afhendingu ?
Jul 27th, 2007 by Mummi
Jæja, þetta er að smella saman í íbúðinni. Kíktum í heimsókn áðan og smiðirnir eru byrjaðir að setja upp hurðakarma í 4 af 7 hurðum. Eldhúsið er að smella saman og sömu sögu má segja um baðið. Mig grunar að smiðirnir, píparinn og rafvirkinn klári þetta í byrjun næstu viku. Þá vantar bara málarann til þess að renna yfir íbúðina og þá ætti þetta að vera klárt til afhendingar. Þannig að afhending á föstudag eftir viku er ekkert óraunhæf hugmynd
Annars er Elísabet stunginn af til Spánar í 2 vikur og þessa helgina verðum við hjónakornin í því að aðstoða við málningu á húsinu hjá Tengdó!
Vonum að þið fáið íbúðina sem fyrst… vika hljómar ekkert óraunhæft :o)