Er að smella saman
Jul 30th, 2007 by Mummi
Núna er ekki mikið eftir að gera í íbúðinni. Málarinn á eftir að koma og renna yfir þetta allt saman, rafvirkin á eftir að koma og ganga frá tenglum (væntanlega þegar málarinn er búinn). Smiðurinn á eftir að ganga frá nokkrum smá atriðum í eldhúsinu og píparinn á eftir að ganga frá sinni hlið í eldhúsinu. Það stefnir því allt í afhendingu á föstudaginn nema eitthvað stórt komi uppá…:)
Það verður því væntanlega farið á fullt í að leggja parket um helgina. Og svo flutningar þann…….kemur í ljós síðar.
Hei
Vonandi fer tetta allt ad koma hja ykkur elskurnar. Annars veit eg ad tid hafid tad rosa gott tar sem tid erud.
Miss you…