Allt góðum gír
Sep 28th, 2007 by Olof
Nú varð ég að láta aðeins heyra í okkur. Hér er allt í rólegheitum og lífið gengur sinn vanagang.
Við Mummi erum búin að vera á búðarrölti í september að reyna að finna okkur gardínur fyrir stofuna og það tókst loksins við ætlum að panta okkur gardínur í gardínubúð sem heitir Skermir (www.skermir.is ef þið viljið kíkja á framboðið). Við þurfum bara að mæla gluggana upp á nýtt og leggja inn pöntun
Það verður svolítill munur að fá gardínur en ég er ánægð með að við hoppuðum ekki á það fyrsta sem við sáum.
Eftir helgi förum við að ganga frá síðustu lánunum og þá verður hægt að fara (vonandi) að ganga frá afsalinu og þá er íbúðin okkar (og bankans).
Haustið er farið að gera vart við sig með ekta Íslensku roki og rigningu, það er svolítið notalegt að sitja inn í stofu með kertaljós og hlusta á vindinn og rigninguna berja á gluggana og ef maður þarf að fara út, þá er bara að klæða sig eftir veðri (jehh sjensinn að íslendingar geri það ![]()
Hún Elísabet ætlar að leggja land undir fót í haustfríinu sínu og skella sér til Norge og kíkja á Tobba, Lilju, Oliver og Bumbuprinsessuna. Og svo ætla ég að skella mér þangað 1. nóv (þið losnið ekki svo auðveldlega við mig ![]()
En ég held ég láti þetta duga að sinni og reyna að skella inn línum pínu oftar
kveðja
Ólabólaáklakanum
jæja, það var mikið að það fannst líf !
Hlökkumtil að sjá ykkur bráðum ;þ