og hvað svo….
Oct 6th, 2007 by Olof
Ég ákvað að láta ekki of langan tíma líða milli blogga í þetta skipti.
Það er ýmislegt búið að vera í gangi bíllinn sem við keyptum okkur í vor fór heldur betur illa með okkur. Hann tók upp á því að bila og þurftum við að punga út 320 þús. Þetta setti eiginlega öll plön úr skorðum og erum við því búin að setja gardínu, ljósa og bókahilluplön á hilluna í bili. Nú er ég bara í mega pælingum hvernig ég geti nýtt gardínurnar, sem ég var með úti, hérna (er svo agalega hagsýn). Eftir þessi svakalegu útgjöld vorum við komin með hálfgerða andúð á greyið bílnum svo við ákváðum að skipta honum út. Það gerðist eiginlega einn tveir og tíu því áður en við vissum af vorum við búin að ganga frá öllum pappírum og komin á nýjan bíl. Í þetta skipti fengum við okkur 2006 árgerð af Toyota avensis, settum hinn upp í og erum uber ánægð (og erum ekki að borga neitt meira af honum ![]()
Nú er mikið framundan reuinion, brúðkaup, noregsferð og ný vinna og sjálfsagt eitthvað meira. Annars er ég orðin svo góðu vön frá Norge að ég nenni ekki að detta inn í stress og læti tek hlutunum bara með stóískri ró og nýt lífsins.
svo segi ég bara við ykkur elskurnar njótið þið lífsins!
og Lilja farðu nú vel með þig og bumbuna elskan, sjáumst brátt.
kveðjaíbili
ÓlabólaáVöllunum
Nú er bara skvísan alveg að koma til okkar, jibbí
Oliver spyr um hana Elisabet á 5 min. fresti !
Geturu ekki drifið þig elskan
hehe
Hún er á leiðinni út á flugvöll í þessum pikkuðu orðum……
Hann nær að skríða upp í til hennar í fyrramálið
Hann var soldið feiminn er á hólminn kom (að skríða upp í til hennar) en var voða spenntur að fara fram og sjá hana sofa
jæja nú fer að styttast í að þú farir að koma, kona !
Hæ Ólöf!
Ertu að koma til Noregs??? Þú hefðir átt að vera á síðustu helgi, það var æfingadagur og húrrandi fyllerí á eftir á Guðrúnarstofu (stúdentastofan). Þín og þinna og Einars var sárt saknað..
Hafðu það gott!
kv. Sigga (sem er að fara til Íslands eftir tæpa viku… og ætlar að vera í heila 3 mánuði!)
Hei skvís
Á ekkert að blogga neitt meir ?
Hlakka til að sjá þig.
Ertu með eitthvað sérstakt í huga hvað þú vilt gera ?
Veit að þú verður með húllum hæ á föstudag en hvaða húllum hæ eigum við að gera af okkur á laugardag ???
Kveðja Lilja
ég held að það sé komin tími til að skrifa eitthvað nýtt hér inn á þessa síðu ! Hhmmmm !