Jólaljósin lýsa
Dec 18th, 2007 by Olof
Ekki hefur hún verið dugleg að blogga frúin á Akurvöllunum (og ekki herrann heldur hmmmm).
En við erum enn þá hérna og höfum ekki borið skaða af rokinu undanfarið nema þá kannski andlega, kommon níu lægðir á einum mánuði (eða hvað það nú var). Ég hef lítið á móti roki en nú er komið nóg. Ég er komin með seríu út á svalir og vil að hún lifi alla vega fram yfir áramót. Hún er reyndar ofurvelfest svo ég skal hundur heita ef hún nær að losna!!!
En það hefur nú ýmislegt annað verið í gangi en bara rok. Við keyptum okkur loks gardínur (ekki þær sem við æluðum upphaflega en aðrar soldið ódýrari í RL búðinni:) og erum komin með slatta af ljósum og ég verð bara að segja að það er orðið agalega kósí hérna hjá okkur og ekki verður það verra þegar jólatréð (sem á reyndar eftir að kaupa) verður komið upp. Mér finnst þetta bara svo æðislegur tími að ég nenni varla að fara út og kaupa jólagjafir og allt það stöff. Það er reyndar langt komið og ætli við klárum ekki á morgun eða miðvikudaginn. Svo er bara að láta sér hlakka til ![]()
Ég er byrjuð í nýju vinnunni (reyndar fyrir næstum því tveimur mánuðum) og er að fíla mig í ræmur, spennandi vinna og samstarfsfólk.
Tobbi, Lilja og Oliver, innilega til hamingju með litlu XXXX Liv. Ég er viss um að hún er algert æði og mig hlakkar til að knúsa hana í lok janúar þegar ég kem til Norge.
En þar sem að ég ætla að skella inn einni færslu enn fyrir jól, þá segi ég bara ….
bless í bili
Ólabólaávöllunum
Hæ hæ og hó hó. Var að skoða jólakortin frá í fyrra og kortið sem ég fékk frá ykkur datt í gólfið og rakst ég þá á kommentið frá þér um þessa síðu á bakhliðinni. Frekar slæmt að það taki ár að kíkja á þig. Gaman að heyra að þið eruð flutt á klakann og það væri gaman að hittast við tækifæri. Bestu kveðjur að Westan, Inga og fjölskylda.
Það var komin tími til að eitthvað heyrðist í ykkur !
Takk fyrir kveðjuna
Vonandi fenguð þið góð jól og að engin fór í jólaköttinn !
Vonandi verður stuð á ykkur í kvöld og farið varlega með flugeldana !
Takk kærlega fyrir okkur; Mýrin var mjög góð =D
Kossar og knús frá Lilju, Tobba, Oliver Breka og Sætu Liv.
Ps. komnar nýjar myndir !
er ekki komin tími til að blogga smá !