hmmmm voru það jólin 2007 eða 2008
Feb 21st, 2008 by Olof
Voða er maður latur við að láta af sér ![]()
Nú ætla ég að gera bót á því. Nú eru fyrstu jólin og áramótin vel liðin frá því við fluttum heim, þau fyrstu síðan 2001. Ég verð að viðurkenna að við áttum yndisleg jól og þrususkemmtileg áramót. Hátíðin var þó eitthvað skrítin því okkur vantaði norsku fjölskylduna okkar (Tobba, Lilju og börn og okkar yndislegu nágranna). En það er víst ekki hægt að fá allt.
Ég skellti mér svo til Norge í lok janúar, til tannsa, og átti þar yndislega helgi með “fjölskyldunni”. Eiginlega gerði ég fátt annað en að borða góðan mat a´la Lilja og knúsa krúttin Oliver og litlu Liv.
Næsta ferð til Norge verður í apríl og þá ætla ég að bjóða kallinum með (hann heppinn). Við verðum þó bara stutt í Noregi en ætlum að skella okkur með vinafólki til Litháen, spennóspennó.
Við höfum verið agalega róleg í tíðinni og eiginlega legið í hýði það sem af er árinu en vonandi förum við að kasta því af okkur og hafa samband við fólk
Nú framundan eru árshátíðir, skírn, ferming, páskar og fullt fullt annað.
en nóg í bili
kveðja
Ólabólaávöllunum
ps. Inga, endilega að hafa samband ef þú ert á suðurleið, það væri rosa gaman að hitta ykkur ![]()
Jæja mikið var !