Jæja nú er ég búin að vinna á leikskólanum í rúma tvo mánuði og komin í tveggja vikna sumarfrí. Planið var eiginlega að ná að leggja gólfefni og flytja í sumarfríinu en það er orðið frekar tæpt þar sem að við fáum íbúðina í fyrsta lagi í lok næstu viku (vonin lifir samt enn þá).
Stórfjölskyldan (mamma, pabbi, Jónína og Hjördís) fóru vestur í dag og hann Mummi minn skellti sér austur á land í fjölskylduferð og Elísabet ekki heima, þannig að mín er bara ein að slaka á. Þetta er eiginlega soldið skrítin tilfinning að vera allt í einu ein í kotinu en ég er svo sem að fara líka (og þá verður Elísabet ein) á morgun, en þá er förinni heitið í skottúr til Norge að heilsa upp á tannsa.
Annars hefur lífið aðalega falist í því, upp á síðkastið, að reyna að kæla sig niður eftir vinnuna. Það er búin að vera eindæma blíða hér á klakanum og varla fallið regndropar síðustu þrjár til fjórar vikurnar og sólin hefur hitað okkur í hamsi. Bara geggjað!!!
en meira seinna ![]()
kveðja
Ólabólaáíslandi
Svona er Ísland í dag…
Jun 29th, 2007 by Mummi
Gleðilegan þjóðhátiðardag !!!
Jun 17th, 2007 by Olof
Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru vinir. Hér á klakanum er blíðskaparveður, logn og skýjað. Planið fyrir daginn er að hafa það næs með fjölskyldunni og hlúa að dóttlunni sem því miður tókst að ná sér í ælupest fyrir þennan flotta dag.
Við erum farin að kíkja reglulega á Akurvellina til að fylgjast með framvindan þar. Nú er búið að flísaleggja baðið og þvottahúsið og verið að draga rafmagnið í. Nú er bara að bíða eftir að innréttingarnar komi og vona að afhendingadagurinn standist það er að við fáum íbúðina 10. júl
Ég er búin að pannta mér flug til Noregs, til að fara til tannsa, og lendi kl.06 að morgni 8. júlí. Hún Tove ætlar að sækja mig til Asker og hún var svo yndisleg að bjóða mér íbúðina sína til afnota þessar tvær nætur sem ég verð. Ég vona að ég nái að hitta sem flesta á þessum stutta tíma sem ég stoppa. Ég vona þó að hitastigið verði ekki yfir meðallagi því ég er orðin svo vön þessum ljúfa hita á Íslandi (10 - 15 gráður).
Annars er bara allt í góðu og eiginlega ekkert að frétta en er það ekki bara fínt, það er engar fréttir eru góðar fréttir.
en nóg í bili
þjóðhátíðarkveðjur frá Íslandi
Ólöf og rest
Hún átti afmæli í gær
Jun 2nd, 2007 by Olof
Já heimasætan okkar hún Elísabet Ósk átti afmæli í gær þann 1. júní og varð þá 18 ára og sjálfráða ! Til hamingju með það elsku dúlls.
Annars er voða lítið að gerast enda eru næstum helmingur af fjölskyldumeðlimum búnir að liggja í rúminu í síðustu viku.
Við erum reyndar búin að skrifa undir kaupsamning á íbúðinni!!! jibbýskibbý og líka búin að ganga frá kaupum á bílnum. Þannig að það er svo sem búið að gerast ýmislegt síðustu vikurnar.
Við erum alltaf reglulega í íbúðinni að fylgjast með hvernig gengur og erum bara nokkuð sátt. Það er búið að flísaleggja og fúga bæði baðherbergi og þvottahúsið og þá er bara að bíða eftir innréttingunum.
Ég er alveg að fíla mig í vinnunni og er mjög ánægð með vinnuna.
og það var held ég allt
kveðja
Ólabólaáíslandi
Ísland farsældar frón….
May 20th, 2007 by Olof
Jæja nú eru komnar rúmar þrjár vikur frá því ég kom heim (rosa gott að geta sagt það) og búið að vera nóg að gera. Ég byrjaði að vinna nokkrum dögum eftir að ég kom heim og líkar rosalega vel, þetta er bara næs að geta farið heim kl.17 og vera búin að vinna og ekki þurfa að eiga á hættu að fá símtöl í tíma og ótíma. Ég var ekki búin að vera sólarhring þegar ég skoðaði íbúðina og bara einn og hálfann þegar ég var búin að gera tilboð og rétt um tveimur sólarhringum eftir að ég lenti var búið að taka tilboðinu. Það er sko ekkert verið að hangsa á þessum bænum. Núna eftir rúmar þrjár vikur er gámurinn kominn og búið að tæma hann í bílskúrinn hjá mömmu og pabba. Svo erum við búin að breyta eldhúsinu (stækka innréttinguna) og ég á leiðinni að fá draumaeldhúsið. Við erum búin að fara nokkrum sinnum að skoða og það virðist vera allt að gera sig. Það er byrjað að flísaleggja baðið og eiginlega langt komið nú er bara að vona að innréttingin komi tímalega svo við fáum íbúðina á réttum tíma. Við fórum í dag að skoða og Mummi tók nokkrar myndir sem við erum búin að skella á netið…. svo nú er bara að kíkja
heyrumst síðar
ÓlabólaáÍslandi
Nýr kafli hafinn
May 8th, 2007 by Mummi
Jæja, núna er ég búin að vera hérna á Íslandi síðan á föstudag og hlutirnir eru farnir að komast í rétt horf. Eins og fram kom í síðustu uppfærslu þá gerðum við tilboð í íbúð að Akurvöllum 2, glæný íbúð sem við fáum vonandi afhenta ef öll plön ganga eftir þann 10. júlí. Íbúðina fáum við nánast tilbúna, það eina sem vantar eru gólfefni. Við gengum frá vali á innréttingum í gærmorgun ásamt því sem við báðum um smá stækkun á eldhúsinnréttingunni. Ólöfu til mikillar ánægju
Við erum bara að bíða eftir því að lánadæmið komi í gegn og þá verður skrifað undir alla samninga.
Gámurinn með búslóðinni okkar kom til landsins í síðustu viku og er búin að rúlla í gegnum tollameðferð og fleira. Ég er búin að ganga frá öllum lausum endum þar og við fáum gáminn keyrðan hingað til tengdó á föstudaginn. Þá hefst fjörið við að troða búslóðinni inn í bílskúrinn
Við erum bæði byrjuð að vinna á fullu, Ólöf á leikskólanum og ég hjá ZEUS Web Works. Það er dulítið skrýtið að tala ekki lengur norsku í vinnunni en alls ekki leiðinlegt. Eiginlega bara gaman að tala íslensku aftur á fullu.
Bílamál eru einnig í vinnslu þessa dagana. Erum búin að finna bíl sem við ætlum að kaupa og vonandi náum við að ganga frá því í þessari viku.
Við erum bæði kominn með ný íslensk símanúmer. Ef ykkur vantar númerið hjá okkur þá fást þau uppgefinn með því að senda tölvupóst á mummi@bothildur.net.
Myndir af nýju íbúðinni eru í vinnslu, hver veit nema eitthvað birtist á þessum vef í vikunni….
Þangað til næst…
Smá uppfærsla
Apr 29th, 2007 by Mummi
Stuttar fréttir fyrir þá fréttaþyrstu, við gerðum tilboð í íbúð á Akurvöllum 2 á föstudaginn sem var tekið. Þannig að eftir ca. 2 1/2 mánuð þá fáum við afhenta glænýja íbúð. Á næstu dögum förum við svo á fullt í að ganga frá þessum málum og velja innréttingar og svo framvegis. Semsagt, mikið fjör framundan
Ég er ennþá í Stokkhólmi hjá Árna Gunnari & Gullu, á bókað flug til Íslands næsta föstudag.
Komin á klakann
Apr 26th, 2007 by Olof
Jæja þá mín bara komin á klakann. Ég lenti kl.17.10 25.apríl og það var ekki frá því að kökkurinn kom í hálsinn, loksins var komið að þessu. Það eru reyndar hálfblendnar tilfinninngar, því þó ég sé ofuránægð með að vera komin heim þá er það svolítið skrýtin tilfinning að vera svo langt frá vinum okkar úti að ég tali ekki um “fjölskylduna” okkar Tobbi, Lilja og Oliver. Við eigum eftir að sakna þeirra mikið. Það er svo dýrmætt að eiga þau að, þau hafa verið stór hluti af okkar lífi út í Noregi. Elsku Tobbi, Lilja og Oliver takk fyrir allt!!!
Ég var að hugsa um það á leiðinni í flugvélinni að það er fullt af fólki sem maður sá daglega eða reglulega og myndaði einhvers konar tengsl við sem ég á kannski aldrei eftir að sjá aftur. Það var svolítið skrýtin tilfinning. En þetta er víst það sem við köllum lífið og það heldur áfram með nýju fólki og endurnýjuðum tengslum við gamla vini en fjölskyldan okkar í Noregi verður alltaf ofarlega i okkar huga.
Í dag ætla ég bara að dúllast við að taka upp úr töskunum og koma mér fyrir og ætla svo að fara í nýju vinnuna mína á morgun og spjalla við þær, ég er orðin voða spennt.
þangað til næst
Ólöf
Húsið tómt og lokasprettur í gangi
Apr 22nd, 2007 by Mummi
Gámurinn kom til okkar á föstudag og með góðri hjálp frá Tobba, Einar, Bosse og Óla Páls þá var hann fylltur á ca. 1 1/2 tíma. Þar með var því lokið og búslóðinn okkar farinn frá okkur. Sjáum hana ekki fyrr en eftir nokkrar vikur. Þetta er voða skrýtin tilfinning að allt í einu sé allt saman farið frá okkur og að húsið sé er orðið nánast tómt. Ég var farinn að hafa smá áhyggjur af því á fimmtudagskvöldið að gámurinn væri hreinlega of lítill fyrir þetta allt saman því mér fannst búslóðin okkar vera orðinn svo stór. Ekki bætti úr skák þegar gámurinn kom, hann leit út fyrir að vera frekar lítill. En þessar áhyggjur reyndist svo vera óþarfar því gámurinn var ekki nema ca. 90% fullur.
Þrif málin breyttust aftur á föstudaginn og það munu koma nokkrar austur-evrópskar dömur í heimsókn á mánudag og þrífa húsið. Síðustu daga höfum við verið í matarboði hjá Rune & Anitu (föstudagskvöld) og svo á mjög skemmtilegri árshátíð hjá Ískórnum (laugardagskv.). Í kvöld er það svo kalkúnabringa a’la Lilja. Namm namm.
Næstu daga munum við svo einbeita okkur að því að klára lausa enda hér og þar með erum við svo farin!
Allt að koma
Apr 18th, 2007 by Olof
Jæja nú er þetta bara að skella á. Tveir dagar í gáminn og húsið er á hvolfi… púfff. Mín er bara pínustressuð. Svo var ég að tala við þessa pólsku (sem ætlaði að þrífa) og hin sem þrífur með henni kom ekki tilbaka eftir páska og versogúð við verðum að redda þessu sjálf, en það ætti nú að hafast.
bæjóspæjó i bilinu (og draslinu)
